Tjónaskoðun
Lentir þú í óhappi? Við hjálpum þér áfram.
Tjón getur verið stressandi, en ferlið þarf ekki að vera flókið. Hafðu samband, sendu myndir eða bókaðu skoðun og við leiðbeinum þér um næstu skref.
- 01
Tilkynntu tjónið til tryggingafélags ef það á við.
- 02
Hafðu samband við H.Jónsson og sendu myndir eða bókaðu skoðun.
- 03
Við skoðum tjónið og förum yfir mögulega viðgerð.
- 04
Við aðstoðum við skipulagningu viðgerðar og bílaleigubíl ef þú átt rétt á því.
Ef þú átt rétt á bílaleigubíl getur H.Jónsson aðstoðað við að panta bíl svo hann bíði þegar þú kemur með bílinn til okkar. Athugaðu þó að réttur til bílaleigubíls fer eftir tryggingu og aðstæðum hverju sinni.
